Hjálp

Svona virkar þetta

Næsta stig er hugsað þannig að barnið geti sest niður og byrjað án þess að þú þurfir að sitja hjá því. Þessi síða er fyrir hitt: fyrstu mínúturnar, hvað skjáirnir þýða, hvernig þú hjálpar án þess að gefa svarið og hvað á að gera þegar eitthvað virkar ekki.

Finnurðu ekki svarið? Sendu línu á hjalp@naestastig.app. Ég les póstinn sjálfur og svara.

Fyrstu mínúturnar

  1. Búðu til notanda

    Nafn eða gælunafn og bekkur. Þú getur haft tvö börn á sömu spjaldtölvu. Hvert þeirra heldur sinni eigin framvindu og þú skiptir á milli með einu handtaki.

  2. Taktu stöðumatið

    Stutt próf, skrifað með pennanum, sem finnur hvar barnið stendur í raun og veru. Það er í boði frá 3. bekk. Yngri börn byrja beint á æfingum. Stöðumatið má taka aftur síðar ef bekkurinn passar ekki.

  3. Byrjaðu á „Í dag“

    Dagsskammturinn er um það bil 20 mínútur: æfing, orðadæmi og upprifjun. Þegar hann er búinn er dagsverkinu lokið og þá má leggja spjaldtölvuna frá sér.

Kortið með næsta skrefi og skammti dagsins neðst í spjaldinu
Næsta skref og skammtur dagsins, ekki endalaus listi

Hvernig eitt dæmi gengur fyrir sig

Dæmið stendur vinstra megin og rúðustrikaða blaðið hægra megin. Barnið skrifar með Apple Pencil, alveg eins og í stílabók, og ýtir svo á Skila og fá yfirferð. Eftir nokkrar sekúndur kemur yfirferðin.

Það sem skiptir mestu máli: skrifaðu útreikninginn, ekki bara svarið. Svar með útreikningi gefur margfalt fleiri stig en talan ein, og endurgjöfin verður miklu gagnlegri þegar hún hefur eitthvað að lesa.

Barn skrifar útreikning með Apple Pencil á rúðustrikað blað
Skrifaðu skrefin, hvert undir öðru
Endurgjöf sem endursegir útreikninginn og gefur tvær stjörnur af þremur fyrir uppsetningu
Endurgjöfin endursegir vinnuna áður en hún dæmir hana

Hvað þýða stjörnurnar?

Stjörnurnar snúast ekki um hvort svarið var rétt. Þær snúast um uppsetninguna: hvort skrefin séu læsileg, í röð og skiljanleg þeim sem les. Það er alveg hægt að fá þrjár stjörnur þótt svarið sé rangt, og það er góð niðurstaða. Barnið hugsaði skýrt og gerði reikningsvillu, sem er miklu auðveldara að laga en óskipulag.

Vísbendingarnar

Undir dæminu er hjálparstigi í fjórum þrepum og ekkert þeirra gefur svarið.

  • Ég skil ekki dæmið. Endursegir dæmið með einföldustu orðum og segir hvað er gefið og hvað er spurt um. Reiknar ekkert og nefnir ekki einu sinni hvaða aðgerð á að nota. Alltaf ókeypis, alltaf opið.
  • Hvað skrifa ég fyrst? Fyrsta línan og af hverju. Ekki sú næsta.
  • Hvað kemur næst? Eitt skref í viðbót, út frá því sem barnið er búið að skrifa.
  • Ég er alveg strand. Öll uppsetningin: stærðirnar nefndar, skrefin í röð og jafnan skrifuð upp með tölunum. Barnið á sjálft eftir að reikna.

Fyrsta þrepið er ókeypis því það snýst um aðgengi, ekki hjálp: barn sem skilur ekki spurninguna á ekki að þurfa að borga fyrir að skilja hana, og það á sérstaklega við um börn sem eiga erfitt með lestur. Hin þrepin leiða barnið í átt að svarinu, og því gefur dæmi sem er leyst eftir þau 10 XP í stað 30 XP fyrir rétt svar með útreikningi. Hjálpin sjálf kostar ekkert, og í 1. og 2. bekk gefur rétt svar alltaf 30 XP.

Þrep 2 til 4 opnast eftir að barnið hefur reynt við dæmið, eða eftir smá stund með það á skjánum. Annaðhvort dugar. Barn sem kemst alls ekki af stað á ekki að þurfa að skila auðu blaði til að fá hjálp.

Hvernig kafli gengur fyrir sig

Hver kafli fer sömu leið, og þess vegna er barninu aldrei kastað út í djúpu laugina. Fjögur skref, í þessari röð.

  1. Um hvað snýst kaflinn

    Stuttur lestur á undan öllu hinu: hvað er segð, hvað er jafna og hvað er fram undan. Hann er alltaf aðgengilegur, líka í miðjum kafla, og hann er alltaf ókeypis. Útskýringar eru aldrei skammtaðar.

  2. Læra

    Kennslustundin. Hún byrjar á dæmi sem barnið reynir áður en aðferðin er kennd, svo koma fullleyst sýnidæmi, svo hálfleyst þar sem stuðningurinn er smám saman tekinn burt, og loks dæmi sem barnið leysir sjálft. Læra er ekki skylda, en þangað er alltaf hægt að fara.

  3. Æfa

    Endurtekningin sem festir kunnáttuna. Dæmin koma úr efnisbanka kaflans í þeirri röð sem kaflinn kennir færniþættina, ekki í belg og biðu, svo sex ára barn fær ekki 13 + 6 áður en það hefur æft samlagningu upp að tíu. Barn sem kemur aftur daginn eftir fær næstu dæmi, ekki þau sömu.

  4. Orðadæmi

    Á milli kafla. Eftir hverja tvo kafla stendur orðadæmi á kortinu: ein saga og nokkrar spurningar um hana sem reyna á það sem barnið hefur lært í öllum köflunum á undan. Enginn segir hvaða reikning þarf. Að lesa í aðstæður og átta sig á hvað á að reikna er sérstök kunnátta, og þarna er hún æfð. Orðadæmin loka engu: næsti kafli opnast hvort sem er.

Í lokin er bardaginn, og hann opnast ekki fyrr en barnið hefur náð valdi á meirihluta færniþátta kaflans. Að ná valdi á færni þýðir að hafa svarað henni rétt, nógu oft, á tveimur ólíkum dögum. Þess vegna getur barn sem æfir sig vel á mánudegi þurft að bíða til þriðjudags eftir skrímslinu. Þetta er engin bilun, svona á það að vera: kunnátta sem lifir nóttina af er kunnátta. Forritið segir það sjálft þegar það á við: „þú ert kominn með nógu mörg rétt svör, komdu aftur á morgun og sýndu það einu sinni enn“.

Þú sérð stöðuna í Geta: hver færni fyrir sig, hversu mörg rétt svör eru komin og á hversu mörgum dögum. Súlan við hlið kaflans hreyfist við hvert rétt svar. Talan við hliðina á henni telur bara færniþætti sem eru fullkláraðir, því hún á að segja það sama og hurðin.

Ævintýrið, prófin og Geta

Ævintýri er kaflaferðin: dæmi, bardagi við lok kafla og næsti kafli sem opnast við kunnáttu en ekki eftir dagatalinu. Bardaginn er stærðfræði. Skrímslið er bara umbúðirnar utan um kunnáttuprófið.

Kaflapróf eru styttri og alvarlegri. Í þeim koma krossaspurningar fyrir þar sem þær eiga við, því tilgangurinn er að kanna stöðuna hratt. Eftir á má fletta í gegnum hverja spurningu og sjá hvað fór úrskeiðis.

Geta er stiginn: hver einstök færni í aðalnámskránni fyrir bekkinn, og hversu langt barnið er komið í hverri. Þangað ferðu þegar þú vilt vita hvar barnið stendur, frekar en hvað það gerði í dag.

Kaflapróf, fyrsta spurning, skrifuð með penna
Kaflapróf: líka skrifað, ekki potað
Niðurstöður úr prófi þar sem hver spurning er merkt rétt eða röng
Farið yfir hverja spurningu eftir á
Geta: listi yfir færniþætti bekkjarins og framvindu í hverjum
Geta: færni fyrir færni, ekki ein tala

Hvernig þú styður barnið

Freistingin er að segja svarið. Það sem virkar betur, og tekur styttri tíma en ætla mætti:

  • Spurðu hvað það skrifaði, ekki hvað það fékk. Barn sem útskýrir fyrstu línuna sína finnur oftast villuna sjálft.
  • Láttu það skrifa skrefin niður. Ef vinnan er öll í hausnum er ekkert hægt að laga þegar hún klikkar. Þess vegna eru stjörnurnar gefnar fyrir uppsetningu.
  • Rangt svar með þremur stjörnum er góður dagur. Hrósaðu hugsuninni. Reikningsvillur hverfa af sjálfu sér með æfingu en óskipulag gerir það ekki.
  • Notaðu útskýringarhnappinn frekar en að leysa dæmið. Hann kennir hugtakið án þess að gefa svarið.
  • Hættu þegar dagsskammturinn er búinn. Tuttugu mínútur á dag skila miklu meiru en tveir tímar á sunnudegi.

Ef barnið er fast í sama kafla dögum saman er bekkurinn líklega of hár. Taktu stöðumatið aftur eða lækkaðu bekkinn í Stjórnun. Barn sem byrjar á réttum stað kemst hraðar áfram en barn sem er fast.

Fyrir foreldrið: Yfirlit

Undir Yfirlit er framvindan og öll vinna barnsins: hver einasta skrifaða lausn geymd á spjaldtölvunni, eins og hún var skrifuð. Þú getur flett í gegnum vinnuna sjálfa en ekki bara samantekt.

Þar er líka foreldra-PIN. Það læsir foreldrasvæðinu: notendum, bekkjarvali, yfirliti og því að skrá próf sem staðið. Það er valfrjálst, en barn sem getur breytt bekknum sínum sjálft gerir það.

Framvinda: fjöldi leystra dæma, færniþættir og hversu oft vinnubrögð voru sýnd
Framvinda, þar á meðal hversu oft vinnan var sýnd

Áskrift

  • Ein áskrift gildir fyrir tvö börn og fylgir Apple-auðkenninu þínu. Fjölskyldudeiling er virk.
  • Í boði eru mánaðaráskrift (11,99 USD) og ársáskrift (119,99 USD) í íslensku App Store. Fyrstu fjórtán dagarnir eru fríir, eða heill mánuður með kóða af prufusíðunni.
  • Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa nema henni sé sagt upp í síðasta lagi sólarhring fyrir lok tímabilsins.
  • Þú stýrir henni og segir henni upp í Stillingar → Apple-auðkennið þitt → Áskriftir á tækinu, ekki inni í forritinu. Það er Apple sem heldur utan um þetta, ekki við.
  • Ertu með áskrift á öðru tæki? Ýttu á Endurheimta áskrift á áskriftarskjánum.

Þegar eitthvað klikkar

„Ekkert er sýnilegt á myndinni“ þótt barnið hafi skrifað

Skrifaðu aftur og skilaðu á ný. Ef þetta gerist oftar en einu sinni viljum við endilega heyra af því: segðu okkur hvað var á blaðinu og hvenær þetta gerðist. Versta villa sem forritið getur gert er að segja barni sem vann verkið að það hafi ekkert gert, og við tökum hana alvarlega.

Penninn skrifar ekki

Athugaðu að Apple Pencil sé tengdur og hlaðinn (Stillingar → Apple Pencil). Forritið er hannað fyrir Apple Pencil, og Logitech Crayon virkar eins. Fingur og ódýr gúmmípenni skrifa aðeins ef kveikt er á Fingur í forritinu, og þá er engin lófavörn.

Yfirferðin er hæg eða svarar ekki

Yfirferðin þarf nettengingu. Ef sambandið er lélegt getur hún tekið langan tíma eða alls ekki komist í gegn. Vinnan á blaðinu tapast ekki: hún er enn á spjaldtölvunni og hægt er að skila aftur.

„Yfirferð er í hvíld í bili“

Þetta þýðir að þjónustan hefur náð hámarki dagsins og hvílir sig fram á næsta dag. Vinnan er örugg. Ef þú sérð þetta á venjulegum degi er það villa okkar megin og við viljum vita af því.

Efnið passar ekki bekknum

Mest efni er tilbúið fyrir 4. til 7. bekk og það bætist jafnt og þétt við. Ef dæmin eru of létt eða of þung, breyttu bekknum í Stjórnun eða taktu stöðumatið aftur.

Hafðu samband

hjalp@naestastig.app. Segðu okkur hvaða bekk barnið er í og hvað var á skjánum. Sendu ekki nafn barnsins og engar myndir af vinnunni. Við þurfum þær ekki og viljum þær ekki.

Hvaða gögn verða til og hvar þau eru geymd stendur í persónuverndarstefnunni.